Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 274 . mál.


817. Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið sem er hið seinna um veitingu ríkisborgararéttar á þessu löggjafarþingi. Við afgreiðslu málsins var hafður svipaður háttur á og við afgreiðslu fyrra frumvarpsins á haustþingi. Formaður og einn nefndarmanna, auk starfsmanna nefndadeildar, fóru yfir allar umsóknirnar til þess að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi. Farið var yfir nýjar umsóknir og umsóknir er hlutu ekki afgreiðslu á haustþingi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Eyjólfur Konráð Jónsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.

Alþingi, 28. apríl 1992.



Sólveig Pétursdóttir,

Ólafur Þ. Þórðarson.

Jón Helgason.


form., frsm.



Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Björn Bjarnason.

Össur Skarphéðinsson.



Ingi Björn Albertsson.

Kristinn H. Gunnarsson.